Þorgrímur vinsæll

Það eru engin lát á vinsældum Þorgríms Þráinssonar um þessar mundir. Bækur hans, Þokan og Ertu Guð, afi?, verma tvö af tíu sætum aðalmetsölulista Hagkaupa og Félags Íslenskra bókaútgefenda þessa vikuna. Þær sitja líka báðar á metsölulista barnabóka hjá Eymundsson en bara Þokan á þar sæti á heildarlista.

Ertu Guð, afi? hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin í ár og hefur hlotið feikigóðar viðtökur gagnrýnenda á öllum aldri. „Ertu Guð, afi? er falleg saga, innihaldsrík, afskaplega vönduð og sögð á leikandi léttan hátt. Þetta er bók sem ætti að höfða bæði til barna sem fullorðinna enda full af fallegum boðskap sem á erindi til allra,“ sagði Ingveldur Geirsdóttir í Morgunblaðinu og gaf bókinni fjórar stjörnur. Sama stjörnufjölda gaf Páll Baldvin Baldvinsson bókinni í Fréttatímanum og sagði höfund hennar höndla viðkvæmt efni „af næmleik og stillingu.” Og í bókmenntaþættinum Kiljunni sagði Kolbrún Bergþórsdóttir: „Mér finnst þetta merkileg bók … falleg og óvenjuleg.“

Þokan er sjálfstætt framhald metsölubókanna Núll núll 9, Svalasta 7an og Undir 4 augu. Þetta eru bækur sem börn og unglingar hafa rifið í sig á undanförnum árum og því ekkert skrýtið að þau langi að lesa framhaldið.

Þorgrímur hefur verið ötull við að heimsækja aðdáendur sína þetta haustið. Hann hefur lesið fyrir þúsundir barna í tugum skóla um allt land og heldur því áfram til jóla.

INNskráning

Nýskráning