Bókaverðlaun barnanna voru afhent í níunda sinn í aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur nú um helgina. Safnið verðlaunar árlega tvær bækur sem börn á aldrinum 6 – 12 ára hafa valið, aðra frumsamda og hina þýdda en að þessu sinni völdu lesendur bók Þorgríms Þráinssonar, Ertu guð afi?, sem bestu frumsömdu bókina.
Valið fór fram í grunnskólum og bókasöfnum um allt land og tóku rúmlega fjögur þúsund börn þátt í kosningunni. Til þess að auðvelda börnunum valið fengu skólarnir og söfnin send veggspjöld með myndum af kápum bóka sem komu út árið 2010.
Töframaðurinn Jón Víðis afhenti Þorgrími og Helga verðlaunin á fjöldskyldudagskrá í Grófarhúsi þar sem skólakór Grandaskóla söng og boðið var upp á flugdrekasmiðju í umsjón Björns Finnssonar og Jóns Víðis. Nokkur börn sem sendu inn atkvæði fengu viðurkenningar fyrir þátttökuna í formi leikhúsmiða og bóka og eitt þeirra, Laufey Lín Bing Jónsdóttir, fær Þorgrím Þráinsson í heimsókn í bekkinn sinn.