Þórdís Elva hlýtur Fjöruverðlaun

Fjöruverðlunin – bókmenntaverðlaun kvenna voru afhent við hátíðlega athöfn í gær. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hlaut verðlaunin í flokki fræðirita fyrir bók sína Á mannamáli. Bók Þórdísar hefur fengið frábærar viðtökur og gagnrýni, hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, hlaut Jafnréttisviðurkenningu Stígamóta, Félagshyggjuverðlaun Ungra jafnaðarmanna og á dögunum var Þórdís einnig tilnefnd til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins.

INNskráning

Nýskráning