Bók Sigrúnar Pálsdóttur um Þóru biskups hefur verið áberandi í fjölmiðlaumræðu um nýjar bækur upp á síðkastið enda einstaklega áhugaverð bók um merkilega konu, byggð á óvanalega ríkulegu og persónulegu heimildasafni, einkum sendibréfum og dagbókum Þóru sjálfrar. Hér kveður líka við nýjan tón í ævisagnagerð hér á landi.
Í viðtali við Fréttablaðið á dögunum vék höfundurinn að forsendum sögunnar og viðteknum hugmyndum manna um söguritun, ekki síst ævisöguformið. Sigrún segir meðal annars:
… bréfin og dagbækurnar (þ.e. bréf og dagbækur Þóru) voru efniviður í alveg ny?ja mynd. Það er ekki oft sem sagnfræðingum gefst tækifæri til þess, enda eru hugmyndir manna um ævisagnaformið nokkuð íhaldssamar hér á landi. Mörgum virðist erfitt að skilja þá staðreynd að þeir sem skrifa bækur „skrifa söguna“, og að sagnfræðingar eru ekki handverksmenn í þjónustu þess sem er liðið. Menn verða að hætta þessu bautasteinatali um að hinir og þessir þekktir einstaklingar í sögunni eigi ákveðnar bækur skilið, því þannig sögusy?n mun aldrei leiða okkur að ny?jum sannindum og ekki heldur gera okkur kleift að koma leyndardómum fortíðar til yngri kynslóða.
Morgunblaðið ræddi sömuleiðis við Sigrúnu og hafði meðal annars eftir henni:
„Þóra er ekki hin hefðbundna kvenhetja Íslandssögunnar, hvorki skáld né baráttukona fyrir réttindum kvenna, en hún skrifaði hins vegar bréf og dagbækurm sem eru einstakar sögulegar heimildir … Stíll hennar er hispurslaus og Þóra lýsir aðstæðum og atburðum mjög nákvæmlega með sviðsetningum og samtölum. Þetta er að mínu viti hin raunverulega arfleifð Þóru og sérstaða í Íslandssögunni, ekki myndlistin, hannyrðirnar eða félagsstörfin.“