Húsfyllir var á kynningarfundi í Þjóðmenningarhúsinu um helgina þar sem Sigrún Pálsdóttir sagnfræðingur kynnti bók sína um biskupsdótturina Þóru. Bók Sigrúnar, sem ber titilinn Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar, kom út í liðinni viku en þar greinir hún frá ævi og örlögum þessarar einstöku konu.
Bréf Þóru og dagbækur opna lesendum nýja sýn á 19. öldina í sögu Íslands og sýna íslenska valdastétt gjarnan í grátbroslegu ljósi. Í erindi sínu á sunnudag stiklaði Sigrún á stóru í viðburðaríku lífi Þóru og gaf gestum innsýn í helstu heimildirnar að baki bókinni, yfirgripsmikið bréfasafn Þóru og eiginmanns hennar Þorvaldar Thoroddsen jarðfræðings. Nákvæmar og hispurslausar lýsingar Þóru á atburðum og aðstæðum eru ekki síst til þess að fortíðin lifnar svo eftirminnilega við í bókinni.
Gerður var góður rómur að erindi Sigrúnar og gaman er að segja frá því að bókabirgðirnar í Þjóðmenningarhúsinu hreinlega kláruðust að erindinu loknu.