„Sauðdrukkinn útí hrauni lá Hallgrímsson Jónas,“ orti Megas um Jónas Hallgrímsson og kynti þar undir ýmsum. Sumir hafa ekki fyrirgefið honum enn. Nú vill svo til að við dreifum nýjum bókum beggja og höllumst að því að þeir séu bragbræður dagsins, þjóðskáldin þá og nú. Í dag kemur út nýtt ljóðaúrval Jónasar, sem Böðvar Guðmundsson hefur tekið saman, en jafnframt ný prentun textasafns Megasar sem rokseldist upp í fyrra. Textasafninu fylgir árituð sjálfsmynd höfundar og skal áréttað að upplagið er takmarkað.