Ritþing Gerðubergs hafa verið haldin frá árinu 1999 og eiga nú fastan sess í menningarlífi borgarinnar. Á þingunum er leitast við að veita persónulega innsýn í líf og feril íslenskra rithöfunda. Næstkomandi laugardag verður haldið ritþing til heiðurs Pétri Gunnarssyni og hefst það kl. 13.30. Stjórnandi ritþingsins er Torfi H. Tulinius og spyrlar þau Soffía Auður Birgisdóttir og Kristján Kristjánsson. Á ritþinginu flytur Valgeir Guðjónsson lög við texta Péturs og sjálfur mun Pétur lesa brot úr verkum sínum. Sjá nánar hér.
Í vikunni kemur út greinasafnið Péturspostilla þar sem finna má úrval úr greinaskrifum Péturs sem birst hafa á ýmsum vettvangi.