Út er komin ljóðabókin Hnefi eða vitstola orð eftir Eirík Örn Norðdahl. Þetta er sjötta ljóðabók höfundar sem einnig hefur gefið út fjórar skáldsögur. Þetta eru ágeng og nokkuð harðneskjuleg ljóð, auk þess sem fylgjast má með gengisfimleikum seðlabankans frá því seint árið 2007 og fram á sumar 2013 efst á hverri opnu bókarinnar.