Sunnudaginn 29. janúar kl. 14 verður opnuð sýningin Þetta vilja börnin sjá! í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Þetta vilja börnin sjá! er sýning á myndskreytingum úr nýútkomnum íslenskum barnbókum og hefur slík sýning verið haldin árlega í Gerðubergi í tíu ár. Þátttakendur á sýningunni keppa jafnframt um íslensku myndskreytiverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm.
Við opnun sýningarinnar á sunnudaginn verður tilkynnt um hver vinnur Dimmalimm-verðlaunin fyrir bestu myndskreytingarnar í íslenskri barnabók árið 2011. Þær bækur sem koma út á vegum Forlagsins og eru með í sýningunni eru Komdu, höldum veislu með myndum eftir höfundinn Björk Bjarkadóttur, Hávamál með myndum eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur, Dans vil ég heyra með myndum eftir Óskar Jónasson, Náttúrugripasafnið með myndum eftir höfundinn Sigrúnu Eldjárn og Af hverju gjósa fjöll? með myndum eftir Þórarinn Má Baldursson.
Sýningin á myndskreytingunum stendur til 1. apríl og er opin virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.