… á andvökunóttum og löngum lestrarkvöldum! Sænski spennusagnahöfundurinn Åsa Larsson heldur aðdáendum sínum við efnið. Í vikunni kom út fimmta bókin í seríu hennar um lögmanninn snjalla Rebecku Martinsson, Fórnargjöf Móloks.
Í stuttum formála bókarinnar útskýrir höfundurinn hver Mólok þessi er. Hann var guð sem veitt gat ríkidæmi, stríðsgæfu og góða uppskeru og samkvæmt biblíusögum var börnum fórnað í hans nafni. „Menn steyptu holar koparstyttur af Mólok. Hann var með stóran faðm. Eldur var kveiktur inni í styttunni svo hún varð glóandi heit. Svo var barnið lagt lifandi í faðm Móloks. Ég hugsaði um þetta þegar ég skrifaði þessa bók. Að fórna barni fyrir velgengni, fyrir veraldleg gæði.“
Hermt er að Larsson vinni nú að sjöttu og síðustu bókinni í seríunni um Rebecku Martinsson en svo sé von á nýrri bókaröð frá þessum flinka höfundi. Meira um það síðar!