Ævintýrið hófst með herra Kitla árið 1971. Þá settist hinn mæti frumleikafýr Roger Hargreaves niður og teiknaði appelsínugulan kall með ofsalangar hendur og síðan urðu Herramennirnir til. Síðustu 40 árin hafa selst yfir 120 milljónir eintaka af Herramannabókum Hargreaves út um allan heim. Sonur hans Adam tók við pennanum þegar faðir hans lést árið 1988 og aðdáendunum fjölgar með ári hverju. Hver er þinn uppáhalds?