Gagnrýnandi Morgunblaðsins er meira en sáttur við nýjustu spennusögu hins bandaríska Lee Child. Í dómi sínum gefur Steinþór Guðbjartsson bókinni Fimbulkaldur fjórar og hálfa stjörnu og fagnar mjög hetjunni snarráðu, Jack Reacher: „Þegar kemur að hetjum eru margir kallaðir en í hópi hetja spennusagna er aðeins einn útvalinn – Jack Reacher. Lee Child kann þá list einna manna best að segja spennusögu.” Og hann bætir við: „Fimbulkaldur er frábær spennubók og enn einu sinni tekst Lee Child að fanga lesandann frá fyrstu síðu til þeirrar síðustu. Það gera bara snillingar …” Það verður ekki annað sagt en þetta séu afbragðs meðmæli. Svellkaldur krimmi í fríið.