Helga Birgisdóttir skrifar lofsamlega um Ólíver eftir Birgittu Sif í vefritið Spássíuna í gær, um það leyti sem verið var að veita höfundi bókarinnar Dimmalimmverðlaunin fyrir framúrskarandi myndskreytingar. Helga byrjar á því að hrósa sjálfum prentgripnum: „Ólíver er ætluð yngstu börnunum og söguna er hægt að lesa oft og mörgum sinnum. Bókin er í stóru broti og „liggur vel“ á borði, þ.e. hún helst vel opin og það er auðvelt að fletta síðunum, en þetta skiptir miklu máli fyrir litla fingur og búka sem ekki eiga auðvelt með að sitja með bækur í kjöltunni. Pappírinn er sterklegur og ætti að þola harkalega meðferð – sem oft eru örlög bóka er ætlaðar eru yngstu kynslóðinni.“
Þá greinir hún bókina skemmtilega – söguna af einfaranum Ólíver sem vill helst ekki eiga samskipti við aðra: „Ólíver kann raunar best við sig í félagsskap bangsanna sinna og gerir þá að þátttakendum í hverjum leik – og leikirnir eru ansi margir. Ímyndunarafl barnsins og fjör birtist ljóslifandi á síðunum þar sem pappakassi breytist í úlfalda, sófagarmur er hrörleg brú, gullfiskar úr pappír ummyndast í lífshættulega hákarla og sandkassaleikur verður fjársjóðsleit.
Helga tekur einnig eftir því sem aðeins myndirnar sýna: „… undir lok ferðalagsins hittir hann Ólavíu, stelpu sem hann hefur aldrei séð áður. Samt var hún þarna allan tímann, þau vissu bara ekki hvort af öðru. Þegar bókin er skoðuð vandlega sést Ólavía á mörgum síðum, með nefið ofan í bók eða upptekin af bangsanum sínum, og alveg jafn ein og Ólíver.“
Við hjá Forlaginu tökum undir lokaorð dómsins þar sem segir: „Í lok bókar er besta ævintýrið rétt að byrja eins og sést á síðustu opnunni þar sem búið er að strika yfir orðið „endir“ og undir stendur „byrjun“. Vonandi er það rétt og að lesendur fái í framtíðinni að fylgjast með fleiri ævintýrum Ólívers.“
Birgitta Sif vinnur um þessar mundir að nýrri bók sem væntanleg er á næsta ári.