Hungurleikarnir hafa aldeilis slegið í gegn hjá íslensku þjóðinni – lesendum á öllum aldri!
Í Kiljunni í gær ræddu þau Kolbrún, Páll Baldvin og Egill um bókina og voru öll sammála um að hún væri fyrirtaks afþreying og sérstaklega frábær til að vekja áhuga unglinga á bókum. Þau voru einnig sammála um að bókin væri falleg og hefði ákveðinn siðaboðskap þrátt fyrir að söguþráðurinn snúist um harkalega baráttu unglinga í ógnvænlegum leik. Það eru fleiri en Kiljufólk sem hafa lofað bókina, hún hefur fengið fjögurra stjörnu dóma í DV, Morgunblaðinu og Fréttatímanum og frábærar umsagnir. Þar er meðal annars talað um spennuna, hugvitið og afþreyingargildi bókarinnar.
Kvikmyndin Hungurleikarnir er væntanleg í lok mars og því tilvalið að fjölskyldan lesi bókina áður en farið er saman í bíó. Næsta bók í þríleiknum er svo væntanleg á íslensku í haust.