Gauti Kristmannsson hafði stór orð um Skáldsögu um Jón eftir Ófeig Sigurðsson í Víðsjá RÚV í gær. Að hans mati tekst Ófeigi firna vel upp í nýstárlegum stíl sögunnar og bréfaformið segir hann að færi lesanda nær sögutíma og persónum. Hann er heillaður af umhverfislýsingunum með hrikalegu Kötlugosinu og hrifinn af því að umhverfið fjandsamlega skuli ekki vinna á ástinni sem bréf Jóns senda norður í land. Ekki er Gauti síst ánægður með ljóðræna kafla sögunnar sem oft birta annað vitundarsvið en lýsingarnar á hvunndegi þeirra bræðra í hellinum: „Hugleiðingar þær og lýsingar sem í þessum köflum birtast geta verið ægifagrar eins og lýsingin á landskjálftanum 11. september 1755 sem án nokkurs vafa má telja til háleitra afreka í íslenskum bókmenntum í ár. Það eru hins vegar ekki aðeins þessir kaflar sem nautn er að lesa. Heildin sem svo vel er saman sett færir okkur ekki aðeins afbragðsgott skáldverk heldur lýsir einnig upp þær hugmyndir og stefnur sem enn setja mark á líf okkar. Um leið minnir það okkur á náttúruna sem allt gefur og engu eirir.“