Skúli skelfir og Nanna norn

Æfðu lesturinn með fjöri og fróðleik

Í dag koma út fjórar bækur sem upplagt er að kippa með sér í fríið eða hafa við rúmstokkinn í sumar til að æfa lesturinn.

Bækurnar um Nönnu  norn hafa notið gríðarlegra vinsælda erlendis um langt skeið. Í fyrra komu út tvær stuttar og litríkar bækur um þessa vinsælu persónu en hér koma tvær bækur um Nönnu fyrir unga lesendur, Nanna kjánaprik og Nanna keppir til sigurs. Í hvorri bók eru fjórar stuttar sögur um Nönnu og uppátæki hennar, sprenghlægilegar og spennandi. Á hverri blaðsíðu eru fjörugar teikningar eftir Korky Paul, ríkar af smáatriðum.

Skúli skelfir og skrímslamyndin er 21. sögubókin um þennan heimsfræga grallara. Eins og fyrri bækur geymir hún fjórar nýjar sögur um Skúla og vini hans sem skreyttar eru skemmtilegum myndum eftir Tony Ross. Hér reynir Skúli fyrir sér í kvikmyndagerð, heimsækir skelfilega frændur, leikur á Finn bróður sinn og heldur sína eigin Ólympíuleika (eða Skólympíuleika!).

Skúli skelfir – Líkaminn er fyrsta bókin í nýrri ritröð sem ber heitið Skelfilegar staðreyndir. Þar er að finna fróðleik um líkama dýra og manna með áherslu á það sem Skúli hefur mestan áhuga á, en það er ekki alltaf það sama og kennslubækurnar hafa í forgrunni. Textinn sem settur upp í stuttum, sjálfstæðum einingum sem henta einkar vel fyrir þá sem eru nýbúnir að ná valdi á lestrinum. Einnig er upplagt að kippa bókinni með í bílinn því fróðleiksmolar Skúla bjóða upp á fjöruga samræðu barna og fullorðinna.

Nú þegar skólaárinu er um það bil að ljúka er mikilvægt að minna börn og foreldra á að upplagt er að nýta sumarið til að halda lestrinum við. Og hvað er betra til þess en skemmtilegar bækur sem barnið langar að lesa aftur og aftur?

INNskráning

Nýskráning